Heim › ...
Að drepa hermikráku eftir Harper Lee - hljóðbók

Að drepa hermikráku

13 klst 15 mín
Bókafélagið

Um bókina

Að drepa hermikráku kom fyrst út í Bandaríkjunum undir heitinu To Kill a Mockingbird árið 1960 og hefur selst í yfir 40 milljónum eintaka. Höfundur bókarinnar, skáldkonan Harper Lee, hlaut Pulitzer-verðlaunin fyrir hana en bókin er afar áhrifamikil og frábærlega skrifuð þar sem kímni og alvarleiki renna saman í töfrandi frásögn. Undirtónninn er raunsönn lýsing á aldarfari í suðurríkjum Bandaríkjanna á fyrri hluta síðustu aldar, fordómum, kynþáttamismunun en líka manngæsku og samstöðu. Þar sem barn segir söguna verður lýsingin enn sterkari og áhrifameiri.

Að drepa hermikráku er jafnan talin í hópi allra bestu bóka tuttugust aldar. Bókin hefur ekki áður komið út á íslensku, en þýðandi er Sigurlína Davíðsdóttir. Lesari er Þórey Birgisdóttir.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán