Heim › ...
Á íslenskum skóm: Smásögur, greinar og ljóð eftir Halldór Laxness - rafbók

Á íslenskum skóm: Smásögur, greinar og ljóð

Höfundur: Halldór Laxness

Rafbók
Vaka-Helgafell

Um bókina

Halldór Laxness er þekktastur fyrir skáldsögur sínar en hann skrifaði einnig fjölda smásagna, gaf út endurminningar, ritgerðir, greinasöfn og kvæðakver. Í þessari bók má finna úrval af styttri sögum hans, greinum og ljóðum, perlur sem skipa stóran sess hjá lesendum engu síður en skáldsögurnar og eiga allar sinn stað í íslenskri bókmenntasögu og þjóðarsál.

Meðal efnis eru þekktar sögur eins og „Ungfrúin góða og Húsið“, sem hefur verið kvikmynduð, og „Jón í Brauðhúsum“ og kvæði sem oft heyrast sungin eins og „Hvert örstutt spor“, réttu nafni „Vöggukvæði“, og „Maístjarnan“ sem hefur orðið að baráttusöng verkalýðsins. Að auki eru hér alkunnar greinar skáldsins um listir, þrifnað og þjóðerni sem vöktu mikla athygli og jafnvel úlfúð þegar þær birtust fyrst.

Þessi útgáfa er með venjulegri nútímastafsetningu og orðskýringum en hvoru tveggja er ætlað að gera texta Halldórs Laxness aðgengilegri fyrir lesendur.

Hvernig virkar þetta?

  1. 1
    Kauptu bókina

    Greiddu einu sinni og bókin er þín að eilífu óháð áskriftarstöðu

  2. 2
    Sæktu Sagnaland appið

    Fáanlegt í App Store og Google Play

  3. 3
    Lestu hvar sem er

    Bókin birtist í bókahillunni þinni

-15%2.540 kr fyrir áskrifendur. Áskrifendur fá 15% afslátt af öllum bókum.