Heim › ...

Um bókina
Sigþrúður er orðin ekkja og vinnur fyrir sér með blaðburði. Hún ræktar garðinn sinn og pottablómin, sinnir köttunum og sækir jarðarfarir. Hún er ein en ekki einmana; allt frá barnæsku hefur lífið kennt henni að treysta ekki á aðra en sjálfa sig. Fólkið hennar er horfið á braut og hún fylgir því í huganum en situr sjálf um kyrrt. Djúpt í sálinni búa þó draumar um annað líf, annað land. Geta slíkir draumar hugsanlega ræst?
Kristín Steinsdóttir er landsþekkt og margverðlaunuð fyrir sögur sínar sem einkennast af vönduðum stíl og skopskyni.
Á eigin vegum hefur hlotið einróma lof og var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, auk þess að fá Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app