Heim › ...
79 af stöðinni eftir Indriði G. Þorsteinsson - hljóðbók

79 af stöðinni

2 klst 55 mín
Forlagið

Um bókina

Í 79 af stöðinni er þjóðfélagslegum aðstæðum á Íslandi eftirstríðsáranna lýst og hvernig sveitamanninum gengur að festa rætur í borginni.

Hér segir frá tregafullum kynnum Ragnars sem er nýfluttur á mölina til að starfa sem leigubílstjóri og hinnar dularfullu en óhamingjusömu borgarstúlku Gógó. Ragnar kynnist Guðríði Faxen, sem á mann á sjúkrahúsi í Kaupmannahöfn. Hún hefur mikil áhrif á Ragnar og með þeim takast heitar ástir.

Sagan gerist laust eftir 1950 og lýsir meðal annars lífinu í Reykjavík á þessum tíma, félögum Ragnars á bílastöðinni og kynnum af bandaríska varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli. Hér í frábærum lestri Guðjóns Davíðs Karlssonar.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán