
Um bókina
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Klöru Ósk Viðarsdóttur Smith, 15 ára. Hún er 165 cm á hæð, 56 kg, grannvaxin, með blá augu og sítt ljóst hár. Slíkar tilkynningar berast Síðdegisblaðinu oftar en blaðamennirnir hafa tölu á. Unglingar hverfa eða láta sig hverfa. Stundum eru þetta sömu andlitin hvað eftir annað og þá fyllast samskiptamiðlar af kaldlyndum skömmum út í allt og alla. Af hverju hefur enginn kontról á þessu liði? Ljósmyndin af stúlkunni sem lýst er eftir snertir viðkvæma strengi í brjósti Einars blaðamanns.
Eitthvað í svipnum minnir hann á hans eigin dóttur þegar hún var yngri og saklausari. En nú er Gunnsa sest við hlið föður síns á Síðdegisblaðinu og vill fá að rannsaka sögu horfnu unglinganna. Hún nær sambandi við Klöru Ósk á Facebook og þær mæla sér mót – eða er það ekki svo? Árni Þórarinsson hefur ritað hörkuspennandi sögu úr íslenskum samtíma og lýsir af stílgáfu og næmi þeirri spillingu sem leynist í hversdagslífinu, heimi hákarla og hornsíla.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
- Eða kauptu á 1.290 kr
Sækja app