
Um bókina
Fáir íslenskir höfundar hafa náð jafn góðum tökum á knöppu listformi smásögunnar og Svava Jakobsdóttir (1930-2004). 12 konur sem kom út 1965 var hennar fyrsta bók og þar kveður við nýjan tón í íslenskri smásagnagerð.
Í sögunum dregur Svava upp öflugar lýsingar á íslenskum veruleika og margbrotnum reynsluheimi persónanna þar sem furðuleiki og blákaldur raunveruleiki fléttast saman og sjaldan er allt sem sýnist. Svava Jakobsdóttir var einn þekktasti og áhrifamesti rithöfundur okkar á síðari hluta 20. aldar og brautryðjandi í íslenskum nútímaskálskap. Auk smásagnanna skrifaði hún tvær skáldsögur og nokkur leikrit og lét til sín taka á sviði menningar- og stjórnmála. Verk hennar hafa verið þýdd á mörg tungumál og hún hlaut fyrir þau ýmsar viðurkenningar, hérlendis og erlendis.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
- Eða kauptu á 990 kr
Sækja app