
107 Reykjavík
Höfundur: Birna Anna Björnsdóttir og Auður Jónsdóttir
Flytjandi: Maríanna Clara Lúthersdóttir
Um bókina
Skemmtisaga fyrir lengra komna. Hallgerður og nánustu vinkonur hennar, Melkorka, gift þumbaranum Agli Þormóði, og Þórdís, nýfráskilin og frjáls, leggja mikið upp úr því að vera leiðandi í samkvæmis- og athafnalífi Reykjavíkur.
Þegar spyrst að gömul skólasystir þeirra úr MR og tíður gestur breskra glanstímarita, sjálf Stefanía Brown-Huntington, sé skilin við breska jarlinn Matthew og flutt aftur til Íslands, ríður á miklu að vinkvennaklíku Hallgerðar takist að ná henni til sín. Þannig hefst fjörmikill, spennandi og ærslafengin atburðarás um reykvíska samtíð þar sem grátbroslegar persónur, raunverulegar sem ímyndaðar, mæta galvaskar til leiks í fyndinni og hárbeittri háðsádeilu.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app